Gestabók
Skrifa í Gestabók
Gestir:
Svar við athugasemd.
Almáttugur hvað þú virðist vera illa upplýstur og skilningssljór. Það eru til milljónir mynda af hjólum (án manns eða konu ef þú endilega villt), strætisvögnum og lestum. Eftir stendur að börn hafa ekkert að gera í viðhengi við svona fréttir. Ég vil taka fram að ég hef ekkert á móti vændi sé það stundað af fullorðnum, sjálfráða einstaklingum sem eru í faginu af fúsum og frjálsum vilja. Ég tek ekki afstöðu gegn því og finnst ekki að það ætti að vera ólöglegt. En auðvitað - menn hafa allan rétt á sínum skoðunum og öðru máli gegnir þegar um vændi sem þriðji aðili hagnast á er að ræða, svo sem mansal. Mamma fór einu sinni með mig og systur mínar á hórubar þegar ég var barn. Mamma er kona og hún var ekki á hjóli en það var óviðeigandi að við vorum þar. Það telst mömmu þó til afsökunnar að hún vissi ekki að þetta væri hórubar. Hún ætlaði bara að fá sér bjór. Þjónninn var mjög skemmtilegur kurteis og bauðst til að passa meðan hún stundaði viðskipti. Hún var nú ansi fljót út og fann veitingastað sem var meira svona børnevenlig. En takk fyrir að lesa skrif mín. http://eddabjork.blog.is/blog/eddabjork/entry/916361/#comment2514121
Edda Björk Hafstað Ármannsdóttir, þri. 21. júlí 2009
kveðja
takk fyrir kveðjuna á blogginu. leiðinlegt að ekki er lengur hægt að skrifa athugasemd við síðustu færslu. það hefði ég viljað. ég tel mig hvorki kristna múslima eða gyðingatrúar, en ég trúi á Krist sem okkar stóra meistara. ég trúi og vona að mannkyn finni sannleikam og Kærleikan og ég trúi á kærleikann.og ég veit í hjartan mínu að engin trúarbrögð eru sannleikanum æðri. hafðu yndisleg jól í faðmi fjölskyldunnar, það ætla ég að gera. steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, mán. 24. des. 2007
Bestu kveðjur
Sæll Egill - og takk fyrir góða athugasemd inni á blogginu mínu. Þú spyrð hvort ég sé mamma Þorvarðar sem var með þér í Hagaskóla. Það getur passað - hann á núna 2ja ára gamlan strák sem heitir Daði Hrafn :) Bestu kveðjur.
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, fim. 29. nóv. 2007
Um bloggið
Egill
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar